Bloggar | 7.8.2008 | 15:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Líf okkar er jörðin og hún er í okkar höndum.
- Við veiðum loðnuna upp til agna, fæðu þorsksins sem hann að miklu leyti lifir á og kvörtum á sama tíma um fiskleysi.
- Við drepum hvali af því þeir éta þorsk sem ekki er nógu mikið af fyrir okkur mennina til að lifa á og græða, í nafni stjórnunar jafnvægis í hafinu?
- Við erum með nefnd; Hringormanefnd, sem greiðir fyrir hvern myrtan sel því hann er víst helsti hýsill hringorma, og spillir þannig þorskinum okkar. Auðvitað vill enginn sjá orma í matnum sínum, en hann er að vísu bara prótín og alls ekki eitraður.
Bloggar | 2.8.2008 | 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eins og unglingarnir segja; það er ekkert smá gaman að þessu.
Fimmta kvöldið í röð birtast uglurnar mínar í garðinum og í kringum húsin okkar. Aldrei þó fyrir kl. ellefu. Sannar náttuglur.
Núna eru þær orðnar fjórar. Engin spurning lengur hverrar tegundar þær eru, né að þetta eru unglingar undir gelgjuskeiðar-áhrifum, bara ærsl og læti, ómeðvitaðar um vonsku heimsins. Frábært. Það er einnig alveg sérstakt (vitandi hve uglur hafa góða sjón), að fylgjast með þessum fuglum, fylgjast með okkur mönnunum. Í garði hússins á móti, er lítið fuglahús svona u.þ.b. fimm metra frá stofuglugganum. Auðvitað hefur enginn fugl orpið þar -en, ein uglan settist ofaná þetta hús í fyrrinótt, að því er virtist í þeim tilgangi einum að fylgjast með, hver og af hverju væri verið að fylgjast með henni. Að sjá hvernig hún gat snúið hausnum er hún klárlega var að gera til að staðsetja þessa veru er horfði svona á hana, var ótrúlegt að sjá.
Bróðir og Gunna náðu myndum af þessu (video),en að sjálfsögðu er FireWire útgangur á vélinni þeirra bilaður svo ég get ekki, að svo stöddu, sýnt ykkur myndir. ...þær koma, þolinmæði....
Bloggar | 22.7.2008 | 13:00 (breytt kl. 13:00) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hlutur kostaði 100 krónur.
Vegna utanaðkomandi aðstæðna þurfti að leiðrétta verðgili hans uppá við um tíu prósent. (10%) Hann kostaði því eftir breytingu 110 krónur.
Hvort var hann hækkaður um 10% eða tíu prósentu stig?
Hver er munurinn?
Ég var að mála glugga og þurfti stiga, náði í fyrstu ekki nógu langt upp svo ég þurfti að lengja í honum um tvær tröppur. Hve mikið lengdi ég hann? Um tvö þrep eða tvö stiga-stig?
Bloggar | 21.7.2008 | 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eins og sum ykkar hafa kannski áttað sig á, þá bý ég í sveit. Fyrir utan stofuglugga okkar er snýr í suður er lítill grösugur garður vel afgirtur, ekki stór en greinilega orðinn eftirsóttur fyrir erlenda sumargesti að heimsækja og búa sér heimili í þennan stutta sumartíma okkar og skilja eftir að launum fallegar fjölgunarkörfur úr stráum, mosa og öðru hlýlegu efni. Vel að merkja, bílastæðið mitt var og er, innan við tveggja metra fjarlægð frá einni svona "fjölgunarkörfu", það eina sem virtist trufla íbúana var hve seinn þessi sauður á þessu hávaða skrapatóli var lengi að koma sér í burtu. Var það ævinlega tilkynnt með afar virðulegum hávaða og vængjaslætti. "Halló, þú maður ...hér búum við, reyndu að taka tillit...."!
En, tilefni þessara skrifa er ekki þetta, þetta var bara formáli. Þegar ég kom heim úr vinnunni eitt kvöldið í vikunni nokkru eftir miðnætti, situr ugla já, ugla á grindverki þessa litla garðs okkar í um þriggja metra fjarlægð frá mér er ég stíg út ú bílnum. Það er ekkert nýtt fyrir mig að sjá uglu, bara ekki svona nálægt og alls ekki svona "heima hjá sér" eins og hún virtist vera þessi. Branduglur eru ekki óalgengar í mínu nágrenni, ég sé þær nokkuð oft en þessi ugla vakti verulega athygli mína. Var ég nú orðinn vitlaus? Ég staldraði því við. Fór ekki inn, heldur beið. Hún fór ekki langt. Hún sveif aðeins örfáa metra í burtu, kom svo aftur, svo nálægt höfði mínu að mér varð ekki um sel. Ég stóð bara þarna eins og þvara og hugsaði að mig minnir upphátt; "Snæugla, getur ekki verið ...-en þessi er hvít, snæuglur eru hvítar"! Ég sofnaði seint og um síðir út frá þessari upplifun og vangaveltum.
Kvöldið eftir endurtekur þetta sig nema nú situr "Snæuglan" mín á ljósastaurnum næst húsinu og hreifir sig ekki þó ég fari út úr bílnum og gangi nær til að sjá hana betur. Er ég loks hef mig inn, krafðist hundurinn minn tafarlausrar útgöngu, og við hundsum ekki slíkt. Út hann fór. Til að tja, hvað gera hundar ...úti? ...Og þá gerðist það, uglan mín brjálaðist, svona kvikindi þoldi hún greinilega ekki, þvílík læti og skrækir. Mér stóð nú bara ekki á sama, eins gott að mér var ekki sjálfum mál á þessum tímapunkti. Og hvað gerist næst, já, góðan daginn, hún sótti aðstoð, þær voru orðnar tvær? Tvær snæuglur, ómögulegt. Ég bara góndi. Hvað hundinn varðaði virtist hann bæði hafa misst sjón og heyrn gagnvart þessum látum, kláraði bara sitt og fór inn að sofa. Það gerði ég líka fyrir rest. Ég þurfti reyndar að gefa mér svolítinn tíma í að plokka skegghýjunginn á hökunni lausan úr bringuhárunum en sofnaði fyrir rest.
Ég var held ég ekki búinn að sofa nema í um klukkustund er ég vaknaði upp með þetta allt á hreinu. Ég er enginn fræðingur í uglum en snæuglur geta þetta ekki hafa verið. Þar sem ég hef aldrei séð nýfleyga brandugluunga, þá hlýtur þetta bara að hafa verið í fyrsta skipti.
Hvað er svo hægt að læra af þessu jú, hvernig væri til dæmis að hafa tiltæka myndavél?
Bloggar | 18.7.2008 | 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)