Stig eða %, hver er munurinn?

Hlutur kostaði 100 krónur.

Vegna “utanaðkomandi” aðstæðna þurfti að leiðrétta verðgili hans uppá við um tíu prósent. (10%) Hann kostaði því eftir breytingu 110 krónur.

Hvort var hann hækkaður um 10% eða tíu “prósentu stig?

Hver er munurinn?

 

Ég var að mála glugga og þurfti stiga, náði í fyrstu ekki nógu langt upp svo ég þurfti að lengja í honum um tvær tröppur. Hve mikið lengdi ég hann? Um tvö þrep eða tvö stiga-stig?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hluturinn sem að kostaði 100 krónur var hækkaður um 10% ekki prósentustig.

Ef að hámarks verð á hlutnum sé 200kr, og hluturinn verið hækkaður úr kr 100 í 110 þá hefur þú hækkað hlutinn um 5 prósentustig eða 10%.

Ef að stiginn þinn var með 10 þrep, jókst han um 20% ekki "stiga-stig".

Klikkhausinn (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 13:04

2 Smámynd: Nonni

Þakka þér fyrir að svara þessu bulli mínu "Klikkhaus". Það sem ég er í raun að gera, er að gera grín að of og rangnotkun á þessu stigakjaftæði. Dæmi: Af hverju er ekki bara talað um atvinnuástand í stað atvinnustigs? Skilja það ekki allir?  Skilurðu?

Kv. Nonni

Nonni, 22.7.2008 kl. 01:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband