Sumar ferð(ast) í vitlausu veðri.

Hún Tóta mín kom við hjá okkur á leið sinni á Krókinn í kvöld. Veðrið á landinu er ekki búið að vera það skemmtilegasta í dag vægast sagt. Samkvæmt spánni átti þó að draga úr ofsanum með kvöldinu eða nóttunni. Færð var sögð leiðinleg á heiðum, norðan og sunnan.

Þegar hún kom vorum við því með tilbúinn kvöldmat handa henni og gott kaffi á eftir. Að sjálfsögðu var síðan sest niður og spjallað saman í góða stund, sagðar sögur, skipst á fréttum og spjallað bara út og suður í dágóðan tíma, um allt og ekkert eins og fólk gerir þegar það hefur ekki sést í nokkra daga.

Þegar hún fór að ókyrrast mundi amma hennar (eh, humm), eftir að hana langaði til að sýna henni hvað hún hefur verið dugleg undanfarið að raða gömlu myndunum sínum í nýju mynda albúmin sin.

Alls tók allt þetta ferli tæpa þrjá tíma, eða vonandi nægilega langan tíma til að versta veðrið verði gengið yfir þegar hún leggur á Holtavörðuheiðina. Hún kemst nú klárlega á leiðarenda án vandkvæða. Ég er ekki í nokkrum vafa um það. Á nýjum Skoda, ekki spurning.

Vonast bara eftir henni í kaffi í bakaleiðinni.

Mun kannski ekki tefja hana svona lengi þá.


Só stjúpid!

Hvað er eiginlega að sumum?

Einn vinnufélagi minn var að vinna á stórum lyftara í dag. Hann var búinn að djöflast á honum í einhverja klukkutíma þegar við tókum eftir að hann var farinn að aka utan í eitt og annað og, það sem vakti ekki minni eftirtekt, hann var með þurrkurnar á, ...innanhúss. Var maðurinn að „snapsa“ sig í vinnunni eða hvað?

Við þorðum ekki annað en nálgast vélina varlega til að gá hverju þetta sætti. Kom þá í ljós að komið hafði gat á glussaslöngu  á gálganum beint fyrir framan hann sem úðaði glussanum yfir alla vélina en mest þó beint á farmrúðuna.

Þegar honum var bent á að stöðva, þóttist hann fyrst ekkert skilja og eftir að honum var gerð grein fyrir að svona væri ekki hægt að nota vélina, varð hann alveg undrandi á veseninu á okkur en sættist loks á að rétt væri að fara með verkfærið til viðgerðar.

Þarf að taka fram að viðkomandi er ekki af íslensku bergi brotinn?


Stærstu mistökin

  Fyrir fimm árum tók ég mig til og opnaði mína eigin vefsíðu. Að sjálfsögðu var ég ekkert sérlega duglegur við að uppfæra hana en samt...

Á þeim tíma (og er reyndar enn), var boðið uppá að setja upp svona síður fyrir lítinn pening á einfaldan hátt. Þó ekki væri verra að kunna eitthvað fyrir sér í vefsíðugerð var og er, afar auðvelt að koma sér upp síðum með þessu móti. Formið er staðlað, einskonar skapalon ekki ósvipað og bloggsíðu færslur eru í dag. Ég valdi að vera með mína síðu hjá velkomin.is".

 Ég datt niður á svo snjallt lénsnafn fyrir mig að ég hannaði meira að segja logo fyrir það byggt á stafagerðinni; Magneto.  Ég lagði heilmikla vinnu í að „Photoshoppa"  það svo það liti vel út en notaði það aldrei, því miður.

Ég athugaði að gamni hvort þetta lénsnafn  væri laust sem .is.  Og hvort það var. Ekki málið, en þar sem mér fannst ég ekki hafa verið nógu duglegur að halda síðunni minni við og kostnaður við .is dæmi er miklu dýrari kostur, lét ég aldrei verða af því að sækja um það og fá það skráð.

Það eru klárlega mestu mistök sem ég hef gert á ævinni.   Ég væri núna að drekka kampavín um borð í skemtisnekkju, einhverstaðar í Karíbahafinu með þið vitið a.m.k. tvær + Smile á feisinu, hefði ég séð þetta fyrir. En, Sick. Þarna sannast enn og aftur "að hika er að tapa".

Fyrir um hálfu ári síðan var haft samband við mig af forsvarsmanni velkomin.is og mér tjáð að þau væru hætt að veita þessa þjónustu og yrði síðunni lokað og eitt. Boðið var uppá að vista fyrir mig öll gögn er inná henni væru inná disk og senda mér að kostnaðarlausu.

Þar sem ég á öll gögn er þarna birtust, sjálfur á diskum, afþakkaði ég það boð. Ég kíki reyndar öðru hverju á gömlu slóðina mína og viti menn, síðan mín er þarna ennþá. Það sem þó hefur breyst er, að ég get ekki lengur unnið með hana. Þeim aðgangi hefur verið lokað. Að sjálfsögðu fór samsæriskenning í gang í höfði mínu straks af stað. Allt féll þetta heim og saman. Velkomin.is er enn starfandi þrátt fyrir að mér hafi verið sagt annað. Hvert er málið?

Klárt, ekkert annað en nafnið.

Og hvað er nafnið?

Jú, það sama og ég nota fyrir bloggið mitt og tvö netföng.

N1

Sjáið þið samhengið?

Fyrir forvitna  má skoða „ennþá" gömlu vefsíðuna mína á:

http://www.velkomin.is/N1


STYSTA OG FALLEGASTA ÆVINTÝRI Í HEIMI

Einu sinni spurði strákur stelpu  „viltu giftast mér“ ? …..
Stelpan sagði: „nei“
Og strákurinn lifði hamingjusömu lífi eftir það, fór í veiði, horfði á fótbolta, spilaði mikið golf, drakk bjór og prumpaði hvenær sem honum sýndist.

Flott meðmæli

Nonni fékk eftirfarandi meðmæli frá yfirmanninum sínum þegar hann sótti um starf hjá öðru fyrirtæki.

1. Hann Nonni vinur minn eyðir góðum tíma
2. í erfiðisvinnu og frágang. Hann vinnur sjálfstætt og eyðir ekki tíma
3. í snakk og blaður. Hann veigrar sér
4. ekki við að aðstoða vinnufélagana og hamast
5. við að klára verkefnin tímalega. Oftast tekur hann
6. sérstakan tíma í verkefnin svona eins og til að forðast
7. miklar pásur. Nonni hefur akkúrat enga
8. sérstaka ástríðu á sjálfum sér og mikla
9. kunnáttu á sínu sviði. Nonna er gott að
10. aðlaga og nýtur reynslu sem engin má
11. vera án. Ég legg til að Nonni verði af-
12. skaplega fljótt gerður að yfirmanni á góðum launum og yfir-
13. greiddur í eitt skipti fyrir öll
14. Það er uppástunga mín að hann verði gerður að forstjóra
15. við fyrsta tækifæri sem gefst.


Stuttu seinna fékk yfirmaðurinn sem hafði fengið þetta bréf e-mail: “Bölvað fíflið stóð yfir mér þegar ég skrifaði meðmælin sem ég sendi þér fyrr í dag. Vinsamlega lestu aðra hverja línu sem eru með oddatölunum”.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband