Ég er ekki með liðagigt, ég var að lesa að páfinn hefði hana.
Spaugilegt | 15.3.2008 | 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Góðan dag.
Velkominn í þjónustusímann
Ef þú þjáist af...
..þráhyggju, skaltu ýta í sífellu á 1
..ósjálfstæði, skaltu fá einhvern til að ýta á 2
..klofnum persónuleika, skaltu ýta á 3, 4, 5 og 6
..ofsóknarbrjálæði, þá vitum við hver þú ert og hvað þú vilt. Bíddu á línunni svo við getum rakið samtalið
..ranghugmyndum, veldu 7 og við gefum þér samband við móðurskipið
..þunglyndi, þá skiptir ekki máli á hvaða hnapp þú ýtir - það svarar þér enginn hvort eð er
..lesblindu, skaltu velja 696969696969
..taugaveiklun, skaltu fitla við ferninginn þar til einhver svarar
..minnisleysi, skaltu velja 8 og segja nafn þitt, kennitölu, símanúmer, fæðingardag, heimilisfang, skónúmer og fullt nafn móður þinnar
..óákveðni, skaltu skilja eftir skilaboð á eftir tóninum eða á undan tóninum eða á eftir tóninum. Vinsamlega bíðið eftir tóninum.
..skertu skammtímaminni, veldu 9
..skertu skammtímaminni, veldu 9
..skertu skammtímaminni, veldu 9
..skertu skammtímaminni, veldu 9
Spaugilegt | 15.3.2008 | 20:58 (breytt kl. 21:38) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Einu sinni var maður sem hét Guðmundur. Hann var þeim galla búinn að þegar vinnufélagarnir töluðu um einhvern þá þóttist hann þekkja hann. Einn daginn í vinnunni í kaffihléinu voru menn að tala um Björk Guðmundsdóttur. Þá heyrðist í Guðmundi: Já, Björk, hún er nú góð stelpa
Vinnufélagi: Guðmundur, þekkir þú Björk?
Guðmundur: Já hún er mjög fín
Vinnufélagi: Djöfuls
kjaftæði Guðmundur. Við erum komnir með nóg af þessu, þú þykist þekkja alla. Í guðanna bænum hættu þessu kjaftæði og haltu þessu fyrir sjálfan þig.
Nokkrum dögum síðar í vinnunni.
Vinnufélagi: Strákar, Svíakonungur er víst að koma til landsins á morgun.
Guðmundur: Svíakonungur, það er nú góður karl.
Vinnufélagi: Þekkir þú líka Svíakonung?
Guðmundur: Já,já ég þekki hann mjög vel
Eins og áður sagði voru vinnufélagarnir löngu búnir að fá sig fullsadda af þessu kjaftaæði í Guðmundi og létu þetta sem vind um eyru þjóta. Daginn eftir var Guðmundur ekki í vinnunni og þótti mönnum það mjög einkennilegt. Sama kvöld í fréttum sást Guðmundur ásamt ríkisstjórninni á REK flugvelli að taka á móti Svíakonungi, og heilsuðust Guðmundur og Svíakonungur með virktum. Vinnufélagarnir voru mjög hissa og sumir meira að segja trúðu núna þessum sögum Guðmundar. Tveimur dögum síðar tilkynnti yfirmaður vinnunnar að hann, ásamt konu sinni, væri að fara til Ítalíu og ætlaði að sjá páfann í Vatíkaninu.
Þá heyrðist í Guðmundi: Páfinn, já, það er nú góður maður.
Yfirmaður: Guðmundur, þekkir þú páfann líka?
Guðmundur: Já, já, ansi fínn karl en svolítið gamall.
Yfirmaður: Guðmundur nú geri ég við þig samning. Þú kemur með okkur til Ítalíu og kynnir mig fyrir páfanum. Ef þú þekkir hann skal ég splæsa á þig ferðinni, ef hann þekkir þig ekki splæsir þú.
Guðmundur: Ok.
Á Ítalíu: Guðmundur og yfirmaðurinn voru komnir í Vatíkanið í messu og var kirkjan fullsetin. Þegar messan var búin gekk Guðmundur í gegnum mannþröngina og upp að púltinu þar sem páfinn var. Þeir heilsuðust með virktum og töluðu í smá stund saman. Síðan er Guðmundi litið yfir mannþröngina en sér yfirmanninn ekki í fyrstu, loksins kemur hann auga á hann þar sem hann liggur á gólfinu með óráði og fólk stumrandi yfir honum. Guðmundur hleypur strax til yfirmanns síns og kemur að honum þegar hann er að vakna aftur til lífsins.
Guðmundur: Hvað gerðist? Varstu svona hissa á þvi að ég þekkti páfann?
Yfirmaður: Nei, nei - þegar þú varst að tala við páfann bankaði Robert DeNiro á öxlina á mér og spurði mig: Who is that guy standing beside Guðmundur?
_______________________________
Seinni:Sálfræðingur var með fyrirlestur í karlaklúbbi. Hvað margir ykkar njótið ásta með konum ykkar á hverju kvöldi? spurði hann. Nokkrir réttu upp hendurnar. En tvisvar í viku? Fleiri hendur á loft. Einu sinni í mánuði? Enn fleiri hendur upp. Einu sinni á ári? Ég, ég hrópaði maður á aftasta bekk og spratt á fætur. Af hverju ertu svona ánægður með það,ef ég má spyrja? sagði sálfræðingurinn.
Það er í kvöld, það er í kvöld svaraði maðurinn kampakátur.
Bloggar | 14.3.2008 | 14:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekki leið á löngu þar til hjúkkan varð ófrísk.
Læknirinn gat ekki hugsað sér að upp kæmist um framhjáhaldið, lét hann því viðhaldið hafa fjárfúlgu og bað hana að fara til meginlands Evrópu og eiga barnið þar.
Hvernig get ég látið þig vita,þegar barnið fæðist? spurði hjúkkan.
Sendu mér bara póstkort og skrifaðu spaghetti á það. Ég skal svo borga allan brúsann.
Konan flaug til Ítalíu og segir ekki frekar af ferðum hennar.
En sex mánuðun seinna hringir eiginkona læknisins á stofuna til maka síns og segir: Elskan, þú fékkst svo skrítið póstkort í dag. Það kemur frá Ítalíu, en ég fæ engan botn í það sem í því stendur.
Hafðu engar áhyggjur af því, ástin mín. Ég skoða kortið þegar ég kem heim.
Læknirinn kom heim um kvöldmataleitið, las kortið og féll að því búnu í gólfið með hjartaslag.
Sjúkrabíll kom á staðinn og flutti lækninn með forgangi á spítala.
Eiginkonnunni varð að sjálfsögu mjög brugðið og einn úr áhöfn bílsins varð eftir til að hugga hana.
Hann spurði hana hvað gæti hafa orðið manni hennar um megn.
Konan tók upp póstkortið og las: Spaghetti, spaghetti, spaghetti. Tvö með pylsu og kjötbollum og eitt án.
Bloggar | 12.3.2008 | 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Bloggar | 9.3.2008 | 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)