Fékk þetta í pósti í gær, nokkuð gott!
Lesið þetta hratt!!
Þetta ER svona köttur
Þetta ER fær köttur
Þetta ER maður köttur
Þetta ER hálfvita köttur
Þetta ER til köttur
Þetta ER að köttur
Þetta ER gleyma köttur
Þetta ER sér köttur
Þetta ER í köttur
Þetta ER hálfa köttur
Þetta ER mínútu köttur
-Farið nú til baka og lesið þriðja orðið í hverri línu og sjáið hvað þú varst dugleg/ur...
Spaugilegt | 1.4.2008 | 13:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þau voru búin að vera saman í nokkra mánuði.
Halldór sat með Maríu á kaffihúsi hélt í höndina á henni og horfði í augun á henni.
Hann andvarpaði og sagði:
- María, eftir að ég hitti þig þá get ég ekki sofið, næ ekki að borða og get ekki reykt eða drukkið...
- Er það! sagði hún hrifin...
Af hverju?.....
- Ég er svo blankur!...
Spaugilegt | 1.4.2008 | 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Pissfullar og flissandi á leiðinni heim í vesturbæinn þurftu þær báðar að pissa og ákváðu að klifra inn í kirkjugarð og skvetta úr henni þar á bakvið einn legsteininn.
Sú fyrsta var ekki með neitt til að þurrka sér á svo hún fór úr naríunum, þurrkaði sér og henti þeim svo. Vinkona hennar var í spari undirfatagallanum og tímdi ekki að þurrka sér á djásninu og var það heppin að það var borði á kransi einum sem hún náði sér í og þurrkaði sér með.
Næsta dag hittast mennirnir þeirra í boltanum og annar segir: Þær eru rosalegar þessar kjéddlingar okkar. Anna kom heim í gær nærbuxnalaus - þetta verður að hætta.
Þá sagði hinn: Það ER nú ekkert. Ragnheiður kom heim með samúðarkort á milli rasskinnanna sem á stóð, -Frá öllum í Sorpu - við munum aldrei gleyma þér.
Spaugilegt | 31.3.2008 | 14:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í hvert skipti sem einhver af dætrum hennar gifti sig bað mamman þá dótturina sem var að gifta sig í það skiptið, að vera fljóta að skrifa heim eftir að hún fluttist að heiman og segja gömlu konunni hvernig kynlífið væri hjá hinni nýgiftu.
Jæja sú elsta gifti sig fyrst og aðeins tveimur dögum seinna barst gömlu konunni bréfið frá dóttur sinni.
Á því stóð aðeins "Myllukökur Myllubrauð".
Gamla konan átti bágt með að skilja þetta en fyrir einhverja rælni tók hún eftir auglýsingu frá Myllunni þegar hún vað að blaða í Dagblaðinu síðar um kvöldið.
En þar stóð "Myllukökur Myllubrauð... ávallt seðjandi".
Gamla konan sá nú að hún þyrfti engar áhyggjur að hafa að elstu dóttur sinni, henni væri vel sinnt.
En þar kom að miðdóttirin gifti sig og leið vika frá brúðkaupinu þar til gömlu konunni barst bréfið frá dóttur sinni.
Þar stóð aðeins "Ingvar og Gylfi". Kella var nú fljót að leita að Dagblöðunum og fann að lokum
auglýsingu frá Ingvar og Gylfa þar sem stóð "Nýi rúmgaflinn frá okkur...King size og extra langur".
Vissi nú kella að hún þyrfti heldur engar áhyggjur af hafa af þessari dóttur sinni.
Jæja bréfið frá yngstu dótturinni var lengi á leiðinni en barst loks kellu fjórum vikum eftir brúðkaupið.
Í bréfinu stóð aðeins eitt orð "Flugleiðir".
Kella leitaði nú ákaft að auglýsingu frá Flugleiðum í Dagblaðinu og á endanum fann hún eina.
En eftir að hafa lesið auglýsinguna leið yfir kerlinguna því þar stóð: "Þrisvar á dag, sjö daga vikunnar, á alla áfangastaði!!
Spaugilegt | 30.3.2008 | 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)